Jæja ágætir n-unit meðlimir ég
byrjaði nú á því að ætla að kommenta á síðunna hjá ykkur en
þetta endaði nú bara með heilu bloggi.
Í fyrsta lagi þá er það mikið
rétt að smári er topp maður enda er það kenningin mín að um
framsóknarmann af grænustu gerð sé að ræða. Byggi ég þá
kenningu á álversbaráttu smára þegar hann fylgdi valgerði
hvert fótmál og tók ekki eitt einasta feilspor. Það eina sem
mælir gegn þessari kenningu er það að hann var kannski of
samstíga framsóknarmönnum, jafnvel var hann orðin meira
samstíga þeim heldur en margir þingmenn flokksins
en nóg um
það.
Í öðru lagi þá er það sennilega
mesta baráttumál flokkanna jafnt og bæjarbúa í fjarðarbyggð
að fá jarðgöng milli esk og nesk. Þetta er mikil nauðsyn
fyrir framgang sveitarfélagsins svo það geti virkað sem heild
og ekki síst fyrir álverið en greið leið að
fjórðungssjúkrahúsinu er þeim lífsnauðsynleg.
Allir flokkar boða göng en
aðeins einn flokkur (framsóknarflokkurinn) tekur frumkvæði og
ábyrgð og ætlar sér að stofna félag sem munn ráðast í
framkvæmdirnar. Um er að ræða álíka félag og var stofnað í
kringum gerð hvalfjarðaganganna og fjármögnun hlýtur að koma
að einhverjum hluta frá ríkinu og svo hagsmunaaðilum svo sem
álverinu og svo mun rekstur gangnanna væntanlega einnig borga
framkvæmdina upp í tímanna rás.
Ég held að hvaða kjósandi sem
er viti hvað það tekur langan tíma að fá göng út úr ágætri
ríkisstjórn okkar enda margt á hennar könnu svo sem
tónlistarhús, sundabraut, klára að tvöfalda reykjanesbraut,
Héðinsfjarðargöng og margt fleira. Þess vegna held ég að ef
fjarðarlistinn haldi völdum eða sjálfstæðisflokkurinn nái
þeim verðum við að keyra í gegnum gatið efst í oddsskarðinu í
einhverja áratugi enn. Enda virðist ríkisstjórnin ekki vera
farinn að hugsa um þessi göng miðað við fund með
samgönguráðherra á esk á dögunum.
Þá tel ég að það séu fráleidd
rök að smári eigi eitthvað meira upp á borðið hjá
ríkisstjórnina heldur en hver annar. Kommúnista hugsuðir sem
í dag stunda einhverskonar miðjumoð að hætti ingibjargar
sólrúnar eiga allra síst upp á borðið hjá
ríkisstjórninni.
Þá er efsti maður
framsóknarflokksins með það á sinni ferilskrá að hafa aflað
sínu sveitarfélagi fáskrúðsfjarðargöngunum og um leið tengt
þann ágæta bæ umheiminum.
Þessar kosningar snúast þrátt
fyrir þetta um málefni en ekki persónur. Ef þær gerðu það
væri smári sennilega með 100% fylgi. Enda vandfundin sá maður
sem hefur horn í síðu persónu hans.
Ég tel að fólk sem íhugi
allvarlega hvers vegna það er að kjósa í þessum kosningum
hljóti að komast að þeirri niðurstöðu að það er verið að
kjósa um göng og þá ber mönnum að kjósa þann flokk sem það
telur líklegast að skili þeim göngum sem að mínu mati er
klárlega framsóknarflokkurinn.